Fór sko alveg međ ţađ...
...alveg rækilega.
Ætlaði að standa mig svo vel í þessu dagbókarbloggi fyrir Samskipti & þjónustu, en klúðraði því alveg, mundi aldrei eftir að blogga né skrifa hjá mér.
Jæja reyni að láta rætast úr þessu og blogga bara venjulega í staðinn fyrir hann Helga. 
Er í íslenskutíma núna og erum við að hlusta á ljóð eftir Jónas Hallgrímsson í tilefni Degi íslenskrar tungu.
Erum svo að fara í stærðfræði á eftir, svaka stuð.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, erum að gera og græja íbúðina okkar og ætlum að fara að koma henni á sölu svo að við getum farið að leita okkur að stærra húsnæði. Höfum það öll gott erum hress og kát þrátt fyrir smá flensu sem að var að hrjá sumt af heimilisfólkinu.
Stelpurnar vaxa og dafna eins og þær séu á launum við það, styttist í að Kristbjörg fari að ná Sögu, allavega eins og hún borðar er ábyggilega ekki langt í það.
Hef þetta ekki lengra í bili.
Tútlídú ~ lærdómsfúsa húsfreyjan í Ásgarði.
6.október 2010. Dagur 2 í Dagbókarbloggi (Samskipti & ţjónusta).
Dagurinn í dag var svo einstaklega heillandi og margt sem að betur hefði mátt fara, eins og að fara fyrr á fætur, en það var bara svo agalega gott að kúra aðeins lengur með stelpunum af því að maður gat það í dag.
Þegar ég var búin að næra og klæða liðið fór ég með Kristbjörgu til Þórunnar og fór síðan með Sögu inn á Saltkráku, uppgötvaði það þegar að þangað var komið að pollagallinn hafði gleymst heima, en hann er algjört möst hérna í Fjarðabyggð þessa dagana, ég skaust heim og náði í gallann og fór síðan með hann inn eftir. Fór síðan til tannlæknisins í strekkingu, þegar að ég var búin þar um hálf tólf-leytið fór ég heim og sparslaði aðeins í veggina á ganginum til að flýta aðeins fyrir. Uppúr tvö þegar að mig byrjaði að verkja í tennurnar (er í tannréttingum) varð ég svo ferlega domm eitthvað að ég kom ekki neinu í verk, fékk mig ekki til að byrja á neinu og fékk mig ekki einu sinni til að setjast niður við tölvunua til að læra, hvað þá leika mér.
Fór því út eftir að hafa velkst um íbúðina í einn og hálfan klukkutíma gafst ég upp og labbaði út, ákvað bara að sækja Kristbjörgu snemma, sú varð ekki lítið glöð þegar að hún sá mömmu sína, það alveg tísti í henni þegar að hún sá mig en hún og hinir krakkarnir voru að klára kaffitímann hjá Þórunni.
Þegar búið var að þrífa hana drifum við okkur í útiföt og fórum og náðum í Sögu, lét mér detta í hug að hringja í Elínu og fá að sækja Skúla um leið og Sögu og kíkja til hennar þar sem að ég nennti ekki heim til mín.
Hún svaraði ekki í gsm-símann þannig að ég ákvað bara að kíkja við hjá henni, vildi nú bara svo til að hún var akkúrat inn á leikskóla að sækja strákpjakkinn, sagði henni frá hringingunni og hvað ég hefði verið að hugsa, en hún var þá á leiðinni að kveðja systur sína sem að var að fara heim til sín síðar um daginn.
Ég skaust snöggt í búð og dreif mig síðan heim með stelpurnar, kíktum aðeins á nýju nágrannana, Ellert Ingvi var reyndar bara einn með hundana, stelpurnar fengu loksins að hitta Freka og Þrumu án búrsins, voru tjóðruð í garðinum. Kristbjörg ákvað að vera svakalega góð við Freka og gefa honum gras að borða, sem að hann þáði, en nartaði ofurlítið í hendina á henni við það, ég bjóst við að hún yrði alveg sturluð af hræðslu, nei nei hún bara hló bablaði eitthvað og benti á Freka og var hæstánægð, var reyndar ekki alveg eins ánægð með það þegar að Þruma sleikti hana í framan fyrst til að byrja með, en á endanum var henni farið að finnast það fyndið og skellihló (Freki og Þruma eru Siberian-Husky hundar sem að eru að flytja í hverfið).
Þegar Saga var búin að láta sig hverfa til Sirrýar og Kristbjörg komin með nóg af hundunum drifum við okkur heim þar sem að ég reif hana úr blautu og skítugu fötunum og leyfði henni að skottast um á sokkabuxum og bol á meðan að ég tók til í eldhúsinu og gerði klárt í brauðvélina og kvöldmatinn.
Borðuðum síðan um sjö-leytið og komum stelpunum í rúmið fljótlega eftir það, svo settum við mæðgur hingar inní eldhús að læra lexíurnar okkar, hún í stærðfræði og ég í töl153. Ég sit ennþá hér og læri en hún er löngu farin í rúmið og sofnuð.
Ég ætla hins vegar ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem að þetta er bara síðasti parturinn af heimalærdómnum hjá mér í dag.
Tútlídú ~ tölvufæra húsfreyjan í Ásgarði.
5.október 2010. Dagur 1 í Dagbókarbloggi (Samskipti & ţjónusta)
Þannig er nú það og þess vegna er ég mætt loksins hingað aftur (í bili, sjáum stil hvort að ég nenni svo að halda áfram eftir þessa daga). Bloggið verður semsagt með svo til sama hætti og áður nema að þið fáið að vita enn nánar hvað það er sem að ég geri á daginn.
Dagurinn í dag var byrjaður á því að drífa sig á fætur og koma Sögu og Kristbjörgu á fætur og klæða þær, ásamt því að gefa þeim morgunmat, þó að hann saman standi annað hvort af jógúrti í plastglösum í bílnum eða banana er svo hinsvegar allt annað mál.
Þegar allir voru klæddir og búnir að næra sig skutlaði ég Guðrúnu í skólann áður en að ég fór með Kristbjörgu til Þórunnar dagmömmu, Guðrún er orðin svo stór og dugleg að hún klæðir sig og nærir alveg hjálparlaust, og er vakin af pabba sínum á morgnanna. Þegar að ég var búin að skila þeim af mér fór ég og náði í Lovísu, skutlaði Sögu inn á Saltkráku á leiðinni yfir á Reyðarfjörð þar sem að stærðfræði og samskipti & þjónusta voru setin á skrifstofubrautinni.
Þegar að skólinn var búinn klukkan tólf röltum við Lovísa yfir í Krónuna og versluðum fyrir heimilin, dúlluðum okkur svo í rólegheitunum yfir í Safnaðarheimili þar sem að setið var matreiðslunámskeið af miklum áhuga.
Þegar því var lokið klukkan þrjú skaust ég örsnöggt inn í Krónu aftur og svo var brunað yfir á Neskaupstað þar sem að Saga og Kristbjörg voru sóttar rétt fyrir fjögur og Lovísu skutlað heim með hennar föggur.
Síðan var haldið heim á leið þar sem að Simmi frændi beið mín og stelpnanna í góðum félagsskap Guðrúnar Helgu og landafræðibókarinnar hennar.

Sátum við Simmi svo við eldhúsborðið hjá mér þar sem að ég fékk afrit af diskunum hans með Harrý og Heimi (þeir eru bara snilld þessir menn), þegar að því var lokið fékk Simmi svo afrit af Kaffibrúsakörlunum hjá mér. Svo á meðan að kvöldmaturinn mallaði í ofninum skutumst við að kaupa tóbak fyrir Guðjón og fara með það til hans. Fór með Simma í eldsnögga sýningarferð um þann hluta frystihússins sem að ekki þarf að galla sig upp fyrir eða fá sérstakt leyfi til að skoða, eftir það var haldið heim og spjallað og hlustað á Kaffibrúsakarlana ásamt því að rifja upp gamla og góða tíma á móts við að ræða þá nýju.
Fljótlega eftir kvöldmatinn fór Simmi heim og Guðjón kom heim úr vinnunni. Þegar búið var að ganga frá eftir kvöldmatinn var börnunum komið í rúmið og svo var kvöldið tekið fyrir framan youtube að rifja upp gamlar minningar við hin ýmsu lög.
Vorum farin í rúmið rétt fyrir klukkan tólf.
Hef þetta ekki lengra í bili.
Tútlídú ~ húsfreyjan þrautlærða í Ásgarði.
8 ára brúđkaupsafmćli í dag. :oD
Uss ekkert smá sem að tíminn líður.
Fyrst finnst manni að við séum nýbyrjuð saman (rúm 13 ár síðan), svo finnst manni eins og maður hafi fengið Guðrúnu Helgu í hendurnar í þarsíðustu viku, gift sig í framhaldi af því, fengið Sögu Mekkín í hendurnar í síðustu viku og Kristbjörgu Pálu í hendurnar í gær.
Tíminn er allt of fljótur að líða, og maður veit ekkert hvað hefur orðið um hann. Ekki varð ég vör við þennan tíma sem að horfinn er. Mér finnst alveg hreint ótrúlegt að Guðrún sé orðin 9 ára, Saga orðin 4 ára og Kristbjörg 6 mánaða. Mér finnst bara svo agalega stutt síðan að ég átti þær þó að það séu 5 og 4 ár á milli þeirra.
En nóg um það.
Annars er allt þokkalegt að frétta hérna af okkur, búin að vera svolítil veikindi hjá okkur síðan á miðvikudaginn í síðustu viku. Guðrún byrjaði þá með ælupest greyið, síðan kom einn og hálfur sólarhringur í pásu en þá tók Saga við, teppalagði hálfa íbúðina með ælu greyið, mamman svaf ekkert þá nóttina þar sem að hún vakti yfir barninu og var í því að þrífa upp eftir hana líka. Svo kom aftur pása, en aðfaranótt mánudagsins var ég orðin lasin. Þannig að það var brugðið á það ráð að níðast aðeins á tengdaforeldrunum og þau fengin til að keyra stelpunum í skólann og leikskólann og sækja í leikskólann. Eftir að Saga var farin með afa sínum á leikskólanum skriðum við Kristbjörg aftur uppí rúm og sváfum fram að hádegi, held að mér hafi nokkurn vegin tekist að sofa pestina úr mér, en mér er búið að vera óglatt síðan á laugardaginn.
Svo var Saga slöpp í morgun þannig að hún var bara heima í dag.
Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér við að sinna heimilinu, börnunum og losna við veikindin, þannig að maður hefur lítinn tíma til að vera í tölvunni, hvorki á blogginu né á fésinu, tala nú ekki um líka af því að við stelpurnar erum einar heima.
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, komið nóg af röfli og væli. :o)
Tútlídú ~ grasekkjan í Ásgarði.
Jćja loksins komiđ ađ ţví.
En af okkur er allt gott að frétta.
Við eignuðumst þriðju dóttur okkar 7 maí, svona fyrir þá sem að ekki vita, og var hún skírð Kristbjörg Pála. Hún er algjört augnayndi eins og hinar tvær, og litli brosgeislinn okkar, brosir út í eitt.
Þannig að það er búið að vera meira en nóg að gera hjá manni á þessu ári og verður það næstu árin. :o)
Annars er búin að vera brjáluð framkvæmdargleði hjá okkur hjónunum síðustu vikurnar, við tókum okkur til og tókum þvottahúsið í gegn hjá okkur, og núna er verið að klára ganginn (loksins, bara 4 ár síðan byrjað var á honum). Svo er bara spurning hvort að við tökum okkur ekki bara til og skellum upp útidyraskýli næst, alveg spurning (ef maður fær leyfi fyrir því þ.e.a.s.).
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, þarf að fara og sækja millistykkið á leikskólann, og ætli maður sæki ekki frumburðinn í leiðinni í Tónskólann, þar sem að það mígrignir hérna á Norðfirði.
Aldrei að vita nema maður smelli inn annari bloggfærslu við tækifæri ef að ritviljinn færist yfir mann og ef maður hefur tíma.
Tútlídú ~ 3ja prinsessu húsfreyjan í Ásgarði.
Til hamingju međ daginn, mamma.
En í dag hefði mamma orðið fimmtug konan, ef hún væri ennþá hjá okkur.
Ég held ennþá uppá afmælið hennar mömmu á einn eða annan hátt, ein með sjálfri mér eða leyfi manni og börnum að taka þátt með mér, og mun sennilega gera um ókomna tíð.
Í tilefni dagsins ætlum við að fara og hitta pabba og fara með honum til hennar, og eyða síðan restinum af deginum með honum.
Til hamingju með afmælið mamma, vildi að þú værir hérna ennþá hjá okkur.
Þín dóttir
Maria Lind.
Tútlídú ~ kasólétta húsfreyjan í Ásgarði.
Jólafrí.
Tútlídú ~ húsfreyjan í Ásgarði.
Jólaundirbúningur.
Búin að senda öll utanlands og utanbæjar jólakortin, á eftir að skrifa á umslögin fyrir innanbæjarkortin.
Á eftir að kaupa 3 jólagjafir, mjög fegin að þær eru ekki fleiri því ég er alveg í vandræðum með hvað ég á að gefa þessum þremur sem að uppá vantar.
Er að verða búin með jólabaksturinn, er að rembast við að klára að baka síðustu sortina, er ekki alveg að höndla handhnoðuð deig, vonandi kemur þetta samt, er búin að fresta því í mörg jól í röð að baka þessa sort.
Er að spá í að sleppa konfektgerðinni, er samt ekki ennþá búin að gera það upp við mig, aldrei að vita ef ég verð í stuði hvort að ég klári þetta bara af líka.
Svo eru þrifin og restin af jólaskrautinu eftir líka, er svona að reyna að fara rólega í þetta útaf bumbubúanum og ástandinu á bakinu á mér, en það gengur ekki alltaf mjög vel. Vona bara að Guðjón verði í fríi um næstu helgi þannig að ég fái hjálp með þrifin og skrautið.
Annars er allt gott að frétta héðan úr Ásgarðinum, við hjónin skelltum okkur á jólahlaðborð með starfsmannafélaginu hans um síðustu helgi, og svo fór ég ein með mínu starfsmannafélagi núna á föstudaginn (Guðjón vildi ekki koma með vegna þess að hann þurfti að mæta í vinnu daginn eftir). Það var ferlega gaman á báðum jólahlaðborðunum, mikið étið af góðum mat.
Svo erum við að fara í 20 vikna sónarinn á þriðjudaginn og er mikil tilhlökkun af minni hálfu, það liggur við að ég telji mínúturnar þangað til að ég fer. Hlakkar ægilega mikið til að sjá litla krílið á fullu og jafnvel heyra hjartsláttinn aftur. Vona svo að krílið leyfi ljósunni að sjá hvort kynið það er svo að við fáum jóla"umslag" til að opna á Aðfangadag (ef að ég get þá beðið).
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, er farin að sækja pabba á Eskifjörð.
Tútlídí ~ jólaóða húsfreyjan í Ásgarði.
Alveg ađ detta.........

Annars er allt gott að frétta af mér/okkur.
Er að vinna á tannlæknastofunni hérna á Neskaupstað fram að jólum, þannig að það er brjálað að gera hjá manni, er reyndar bara að vinna til hálf tvö, en er svo ennþá að vinna þrjá daga í viku frá fimm til sjö niðrí Samkaup. Vonandi kem ég öllu í verk sem að ég var búin að ákveða að gera fyrir jólin, hef varla tíma til að henda í eina þvottavél, en það er heldur betur komin tími á það, taukörfurnar orðnar yfirfullar hjá manni.
Síðasta föstudag fagnaði ektamaðurinn þrítugsafmælinu sínu, og í tilefni þess var nánustu ættingjum boðið í kaffiveitingar á sunnudaginn, á laugardeginum var bakað og eitthvað tekið til, áður en haldið var niðrí bæ til að fylgjast með því þegar að kveikt var á jólatrénu og jólasveinarnir komu í heimsókn með pompi og prakt, var svaka stuð í bænum, kafsnjóaði sem var bara fínt, gerði stemminguna enn jólalegri að mínu mati.

Þegar að maður kom heim eftir vinnu á mánudaginn fékk maður á tilfinninguna að maður hefði verið rændur þegar maður gekk inní íbúðina, forstofan hálftóm og stofan, eldhúsið og barnaherbergin líka. Maður var orðin svo vanur þessu drasli sem að var alltaf hérna að manni finnst þetta hálf asnalegt núna.

Jæja hef þetta ekki lengra í bili, þarf að ná smá svefni fyrir vinnu á morgun.
Tútlídú ~ jólalega húsfreyjan í Ásgarði.
HAHAHAHAHAHAHAHA verđ ađ sjá ţessa.
Meig næstum því á mig úr hlátri.
Tútlídú ~ næstum því pissublauta húsfreyjan í Ásgarði.
