8 ára brúđkaupsafmćli í dag. :oD
Uss ekkert smá sem að tíminn líður.
Fyrst finnst manni að við séum nýbyrjuð saman (rúm 13 ár síðan), svo finnst manni eins og maður hafi fengið Guðrúnu Helgu í hendurnar í þarsíðustu viku, gift sig í framhaldi af því, fengið Sögu Mekkín í hendurnar í síðustu viku og Kristbjörgu Pálu í hendurnar í gær.
Tíminn er allt of fljótur að líða, og maður veit ekkert hvað hefur orðið um hann. Ekki varð ég vör við þennan tíma sem að horfinn er. Mér finnst alveg hreint ótrúlegt að Guðrún sé orðin 9 ára, Saga orðin 4 ára og Kristbjörg 6 mánaða. Mér finnst bara svo agalega stutt síðan að ég átti þær þó að það séu 5 og 4 ár á milli þeirra.
En nóg um það.
Annars er allt þokkalegt að frétta hérna af okkur, búin að vera svolítil veikindi hjá okkur síðan á miðvikudaginn í síðustu viku. Guðrún byrjaði þá með ælupest greyið, síðan kom einn og hálfur sólarhringur í pásu en þá tók Saga við, teppalagði hálfa íbúðina með ælu greyið, mamman svaf ekkert þá nóttina þar sem að hún vakti yfir barninu og var í því að þrífa upp eftir hana líka. Svo kom aftur pása, en aðfaranótt mánudagsins var ég orðin lasin. Þannig að það var brugðið á það ráð að níðast aðeins á tengdaforeldrunum og þau fengin til að keyra stelpunum í skólann og leikskólann og sækja í leikskólann. Eftir að Saga var farin með afa sínum á leikskólanum skriðum við Kristbjörg aftur uppí rúm og sváfum fram að hádegi, held að mér hafi nokkurn vegin tekist að sofa pestina úr mér, en mér er búið að vera óglatt síðan á laugardaginn.
Svo var Saga slöpp í morgun þannig að hún var bara heima í dag.
Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér við að sinna heimilinu, börnunum og losna við veikindin, þannig að maður hefur lítinn tíma til að vera í tölvunni, hvorki á blogginu né á fésinu, tala nú ekki um líka af því að við stelpurnar erum einar heima.
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, komið nóg af röfli og væli. :o)
Tútlídú ~ grasekkjan í Ásgarði.
Jćja loksins komiđ ađ ţví.
En af okkur er allt gott að frétta.
Við eignuðumst þriðju dóttur okkar 7 maí, svona fyrir þá sem að ekki vita, og var hún skírð Kristbjörg Pála. Hún er algjört augnayndi eins og hinar tvær, og litli brosgeislinn okkar, brosir út í eitt.
Þannig að það er búið að vera meira en nóg að gera hjá manni á þessu ári og verður það næstu árin. :o)
Annars er búin að vera brjáluð framkvæmdargleði hjá okkur hjónunum síðustu vikurnar, við tókum okkur til og tókum þvottahúsið í gegn hjá okkur, og núna er verið að klára ganginn (loksins, bara 4 ár síðan byrjað var á honum). Svo er bara spurning hvort að við tökum okkur ekki bara til og skellum upp útidyraskýli næst, alveg spurning (ef maður fær leyfi fyrir því þ.e.a.s.).
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, þarf að fara og sækja millistykkið á leikskólann, og ætli maður sæki ekki frumburðinn í leiðinni í Tónskólann, þar sem að það mígrignir hérna á Norðfirði.
Aldrei að vita nema maður smelli inn annari bloggfærslu við tækifæri ef að ritviljinn færist yfir mann og ef maður hefur tíma.
Tútlídú ~ 3ja prinsessu húsfreyjan í Ásgarði.
Til hamingju međ daginn, mamma.
En í dag hefði mamma orðið fimmtug konan, ef hún væri ennþá hjá okkur.
Ég held ennþá uppá afmælið hennar mömmu á einn eða annan hátt, ein með sjálfri mér eða leyfi manni og börnum að taka þátt með mér, og mun sennilega gera um ókomna tíð.
Í tilefni dagsins ætlum við að fara og hitta pabba og fara með honum til hennar, og eyða síðan restinum af deginum með honum.
Til hamingju með afmælið mamma, vildi að þú værir hérna ennþá hjá okkur.
Þín dóttir
Maria Lind.
Tútlídú ~ kasólétta húsfreyjan í Ásgarði.
Jólafrí.
Tútlídú ~ húsfreyjan í Ásgarði.
Jólaundirbúningur.
Búin að senda öll utanlands og utanbæjar jólakortin, á eftir að skrifa á umslögin fyrir innanbæjarkortin.
Á eftir að kaupa 3 jólagjafir, mjög fegin að þær eru ekki fleiri því ég er alveg í vandræðum með hvað ég á að gefa þessum þremur sem að uppá vantar.
Er að verða búin með jólabaksturinn, er að rembast við að klára að baka síðustu sortina, er ekki alveg að höndla handhnoðuð deig, vonandi kemur þetta samt, er búin að fresta því í mörg jól í röð að baka þessa sort.
Er að spá í að sleppa konfektgerðinni, er samt ekki ennþá búin að gera það upp við mig, aldrei að vita ef ég verð í stuði hvort að ég klári þetta bara af líka.
Svo eru þrifin og restin af jólaskrautinu eftir líka, er svona að reyna að fara rólega í þetta útaf bumbubúanum og ástandinu á bakinu á mér, en það gengur ekki alltaf mjög vel. Vona bara að Guðjón verði í fríi um næstu helgi þannig að ég fái hjálp með þrifin og skrautið.
Annars er allt gott að frétta héðan úr Ásgarðinum, við hjónin skelltum okkur á jólahlaðborð með starfsmannafélaginu hans um síðustu helgi, og svo fór ég ein með mínu starfsmannafélagi núna á föstudaginn (Guðjón vildi ekki koma með vegna þess að hann þurfti að mæta í vinnu daginn eftir). Það var ferlega gaman á báðum jólahlaðborðunum, mikið étið af góðum mat.
Svo erum við að fara í 20 vikna sónarinn á þriðjudaginn og er mikil tilhlökkun af minni hálfu, það liggur við að ég telji mínúturnar þangað til að ég fer. Hlakkar ægilega mikið til að sjá litla krílið á fullu og jafnvel heyra hjartsláttinn aftur. Vona svo að krílið leyfi ljósunni að sjá hvort kynið það er svo að við fáum jóla"umslag" til að opna á Aðfangadag (ef að ég get þá beðið).
Jæja hef þetta ekki lengra í bili, er farin að sækja pabba á Eskifjörð.
Tútlídí ~ jólaóða húsfreyjan í Ásgarði.
Alveg ađ detta.........

Annars er allt gott að frétta af mér/okkur.
Er að vinna á tannlæknastofunni hérna á Neskaupstað fram að jólum, þannig að það er brjálað að gera hjá manni, er reyndar bara að vinna til hálf tvö, en er svo ennþá að vinna þrjá daga í viku frá fimm til sjö niðrí Samkaup. Vonandi kem ég öllu í verk sem að ég var búin að ákveða að gera fyrir jólin, hef varla tíma til að henda í eina þvottavél, en það er heldur betur komin tími á það, taukörfurnar orðnar yfirfullar hjá manni.
Síðasta föstudag fagnaði ektamaðurinn þrítugsafmælinu sínu, og í tilefni þess var nánustu ættingjum boðið í kaffiveitingar á sunnudaginn, á laugardeginum var bakað og eitthvað tekið til, áður en haldið var niðrí bæ til að fylgjast með því þegar að kveikt var á jólatrénu og jólasveinarnir komu í heimsókn með pompi og prakt, var svaka stuð í bænum, kafsnjóaði sem var bara fínt, gerði stemminguna enn jólalegri að mínu mati.

Þegar að maður kom heim eftir vinnu á mánudaginn fékk maður á tilfinninguna að maður hefði verið rændur þegar maður gekk inní íbúðina, forstofan hálftóm og stofan, eldhúsið og barnaherbergin líka. Maður var orðin svo vanur þessu drasli sem að var alltaf hérna að manni finnst þetta hálf asnalegt núna.

Jæja hef þetta ekki lengra í bili, þarf að ná smá svefni fyrir vinnu á morgun.
Tútlídú ~ jólalega húsfreyjan í Ásgarði.
HAHAHAHAHAHAHAHA verđ ađ sjá ţessa.
Meig næstum því á mig úr hlátri.
Tútlídú ~ næstum því pissublauta húsfreyjan í Ásgarði.
Bloggleysi dagsins.
Heyrið mig svo væri æðislegt ef að þið nenntuð að kvitta líka, þarf ekki að vera annað en kvitt eða eitthvað álíka, langar svolítið hverjir eru að lesa hjá mér.

Hvað er ást í hugum ungra barna?
Gefðu þér 3 mín. til að lesa þetta. Það er alveg þess virði. Fagfólk lagði spurninguna fyrir hóp af 4 - 8 ára börnum, "Hvað þýðir Ást?"
Svörin voru fjölbreyttari og dýpri en nokkurn grunaði. Hvað finnst þér?:
'Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki
beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel
eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást.'
Rebekka 8 ára
'Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi.
Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.'
Billy - 4 ára
'Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra
og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl - 5 ára
'Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar
sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.'
Chrissy - 6 ára
Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri - 4 ára
'Ást er þegar Mamma gerir kaffi handa Pabba,og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi.'
Danny - 7 ára
'Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira.
Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'
Emily - 8 ára
'Ást er það sem er með þér í stofunni á Jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar.'
Bobby - 7 ára (Vaá!)
'Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikka - 6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)
'Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,
og þá gengur hann í henni alla daga.'
Noelle - 7 ára
'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru
enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommy - 6 ára
'Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd.
Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá Pabba minn veifa og brosa.
Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur'
Cindy - 8 ára
'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.'
Clare - 6 ára
'Ást er þegar Mamma gefur Pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elaine - 5 ára
'Ást er þegar Mamma sér Pabba illa lyktandi og sveittan
og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford.'
Chris - 7 ára
'Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan
eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
Mary Ann - 4 ára
'Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér
öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lauren - 4 ára
'Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður
og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen - 7 ára
'Þú ættir ekki að segja "Ég elska þig" nema þú meinir það.
En ef þú meinar það áttu að segja það oft. Fólk gleymir.'
Jessica - 8 ára
Og að lokum:
4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar.
Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: "Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta"
Tútlídú ~ tárasjúka húsfreyjan í Ásgarði.
Vinsamlegast athugiđ.
1.Maður borðar aðeins af sínum eigin diski.
2.Snýtið ykkur ekki í servíettuna.
3.Það er engin kurteisi að klóra sér í höfðinu með gafflinum.
4.Vegna þeirra sem sitja í kring, eru menn beðnir að láta vera að kitla dömuna meðan hún drekkur.
5.Forðist þrengsli undir borði, skríðið til hægri.
6.Ef þú þarft að geispa undir ræðuhöldum, vertu þá kurteis og láttu eins og þú sért að stanga úr tönnunum.
7.Þurfi maður að bregða sér frá er ekki nauðsynlegt að tilkynna öllum erindið.
8.Leysið aðeins vind á rólegan og yfirvegaðan hátt.
9.Útstillt brjóst eru einkaeign.
10.Ástríðuþrungin augnatillit eru bönnuð milli kærustupara sem hafa verið trúlofuð í meira en 5 ár.
11.Óskila konum verður að skila aftur í síðasta lagi á morgun.
Sorrý elskurnar mínar er bara eitthvað ógeðslega "blogglaus" í hausnum þannig að þið fáið bara eitthvern húmor og álíka klikkað bull þangað til ég fæ "uppljómun."
Tútlídú ~ "blogglausa" húsfreyjan í Ásgarði.
ţćr eru oftar en ekki frábćrar gömlu (sk)vísurnar
Þótt veraldargengið sé valt,
og úti andskoti kalt.
Með góðri kellingu,
í réttri stellingu,
bjargast yfirleitt allt.
Fékk þetta sent í tölvupóstinn minn og bara varð að skella þessu hérna inn, finnst þetta bráðfyndið.
Tútlídú ~ húsfreyjan í Ásgarði
